Thursday, May 14, 2009

which witch?


Síðustu nokkra daga hefur sálartetur mitt verið á einhverju flippi. Sumir vilja meina að ég "sé svo viðkvæm", sumir verandi hún móðir mín..En hún hefur margoft bent mér á að fara varlega, eða rólega....eða hægar. Eða eitthvað. Og hef ég oftast farið í vörn innra með mér og haldið að henni finnist ég vera andlegt grey...sem er kannski ívið dramatískt viðmót.

En ef ég tek saman það sem hefur verið að gerast í kringum mig, er ég ekkert hissa á því að það sitji eftir eitthvað innan í mér sem vill hreinlega fá hlutina á hreint. Í dramatískri túlkun þýðir þetta að ég er með öskrandi afskræmingu af ofsaglöðu nornabarni sem hendist örvæntingafullt til og frá í leit að einhverju haldbæru. Einhverju sem réttir af þá bilun (geðveiki) sem það er að upplifa og valda.

1.
Ég er vonsvikin. Ég hef verið að fylgjast með umræðum fólks um hitt og þetta sem er í gangi í þjóðfélaginu og mér líður eins og ég búi á eyju fullri af kexkökum - Eða crackers. Hvítu rusli. Lykilorð: Líður. Kannski bylur hæst í tómri tunnu, kannski hefur það fólk hæst sem veit ekkert í sinn haus. Sem betur fer finnur maður frávikin innan um fávísina.

2.
Ég fékk afganginn af eigum mínum sendar heim frá Bandaríkjunum um daginn og ég hef ekki haft eirð í mér að ganga almennilega frá. Ekki að mér líði vel í óreiðunni, heldur er bæði mjög lítið pláss til að koma því fyrir, og svo hefur mig ekkert langað til að fara í gegnum draslið. Ég er nefnilega ein af þeim sem fer á memory lane-trip þegar ég þarf að pakka, eða afpakka. Ég nenni því ekkert alltaf og sérstaklega ekki undanfarið þar sem ég er búin að vera nokkuð ánægð með það sem ég hef hér. Korny- I know.

3.
Ég hef ákveðið að 3. ástæða andsetinnar hegðunnar komi ykkur ekki við að svo stöddu.
Hægt er að nálgast mig í síma 615 1475 fyrir nánari upplýsingar.

Góðar stundir.

1 comment:

  1. Við erum manneskjur. Fólkses eins og við viljum oft fara að halda að við séum eitthvað skrýtnar ef við erum viðkvæmar, væmnar, leiðar eða eitthvað svoleiðis. En það er víst bara eðlilegra svona, ekki bara OFSAGLEÐI!!!! eða rosaleiði :(
    Bara allskonar grátónar af líðan og hegðun.
    Þú gætir líka náttlega verið andsetin...

    ReplyDelete

Followers