Saturday, February 28, 2009

Laugardagskvöld

Jess loksins helgi.

Ég er búin að drekka kaffi og tala í símann, breyta statusnum mínum á Facebook, hanga útá svölum í sólinni -svona af og til í 5 mín í senn til að frjósa ekki í hel, laga á mér næstum því úr sér gengna hárið á mér, leggja lokahönd á málverk, fara í sturtu, reykja nokkrar síðustu sígarettur, horfa útum gluggann, sópa gólfið, þýða brot úr mynd, skissa, tékka á mér í speglinum til að vera viss um að ég sé ennþá til, ganga frá þvotti og svo núna blogga.

Héðan í frá verður bloggið mitt upptalning á "afrekum" dagsins.

Á eftir hitti ég móður mína og ömmu og borða með þeim kjúkling að hætti mömmu. Ætlaði að vera búin að hitta ömmu fyrir löngu. Amma litla er krútt.

Bless kæra online dagbók.

1 comment:

  1. Hey, þú getur gert það sama í dag og svo gert bara copy-paste með nýrri dagsetningu!!! Sniðugt?

    ReplyDelete

Followers